— Morgunblaðið/Eggert

Stór og mikil hafísrönd hefur torveldað skipum að komast um á Grænlandssundi undanfarna daga. Í röndinni er að finna nokkra stóra borgarísjaka að sögn Langhelgisgæslunnar og er þekjan svo þykk að skip geta ekki siglt í gegnum hana. Í rannsóknarflugi Gæslunnar í gær kom aftur á móti í ljós að röndin liggur 30 sjómílum norður af Kögri á Vestfjörðum, ekki 20 eins og Veðurstofan hafði gert ráð fyrir.