Sigrún Ögmundsdóttir fæddist 4. júlí 1959. Hún lést 29. október 2024.

Útför Sigrúnar fór fram 12. nóvember 2024.

Í byrjun ársins hittumst við Sigrún á Safnanótt í Grafíksalnum þar sem við fögnuðum grafíklistamanni ársins, en þar var hún mætt með dóttur sinni Veru til að fagna grafíklistamanni ársins. Létt var yfir Sigrúnu eins og alltaf, brosmild og hlæjandi, það geislaði af þeim mæðgum. Eftir ánægjulegt spjall um listir og menningu hafði Sigrún orð á því að nú væri kannski kominn tími til að taka þátt í starfsemi félagsins á nýju ári. Sigrún hafði áður starfað í stjórn félagsins með mikilli prýði, hún var afar natin, skipulögð, orðheppin og vinnusöm. Og í minningunni var hún sú öflugasta þegar kom að ritvinnslu, Excel og skýrslugerð.

Það var mikill styrkur fyrir félagið að hafa listakonu eins og

...