Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hótaði því í gær að Rússar gætu ráðist á helstu stjórnarbyggingar í Kænugarði með hinni nýju ofurhljóðfráu eldflaug sinni, Oreshnik, sem beitt var á borgina Dnípró í síðustu viku. Rússar gerðu í fyrrinótt eina af stærstu loftárásum sínum á Úkraínu frá upphafi stríðsins, og glímdi um milljón manns í vesturhéruðum landsins við rafmagnsleysi að henni lokinni.
Stjórnvöld í Úkraínu sögðu að Rússar hefðu skotið 90 eldflaugum og sent hundrað sjálfseyðingardróna til árása á landið í gær, og beindist árásin að raforkukerfi landsins. Náði árásin að valda skaða í fjórtán af héruðum landsins, og var rúmlega hálf milljón manna án rafmagns í Lvív-héraði í vesturhluta landsins í gær.
Pútín sagði að árásin hefði verið
...