Átján Grímseyingar eru nú á kjörskrá sem eru staddir á eyjunni, og höfðu 17 þeirra greitt atkvæði utan kjörfundar í gær, allir nema Anna María Sigvaldadóttir, formaður kjörstjórnar í Grímsey. Hún segir í samtali við Morgunblaðið að eðli málsins…

Átján Grímseyingar eru nú á kjörskrá sem eru staddir á eyjunni, og höfðu 17 þeirra greitt atkvæði utan kjörfundar í gær, allir nema Anna María Sigvaldadóttir, formaður kjörstjórnar í Grímsey.

Hún segir í samtali við Morgunblaðið að eðli málsins samkvæmt megi hún ekki greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sjálfri sér, og hyggst hún greiða atkvæði í dag hjá sýslumanninum á Akureyri, þegar hún fer með kjörgögn hinna sautján til Akureyrar.

Engu að síður verður að hafa kjörstað opinn í eyjunni í einhvern tíma á sjálfan kjördag lögum samkvæmt og fá Grímseyingar þá kost á að breyta atkvæði sínu, snúist þeim hugur einhvern tímann á næsta sólarhring. „Svo kíkja kannski einhverjir bara í kaffi,“ segir Anna María. sgs@mbl.is