Safnarar bíða eflaust margir spenntir eftir komandi uppboði franska uppboðshússins Giquello sem haldið verður í desember næstkomandi. Þar verður meðal annars þessi myndarlega kúpa af nashyrningseðlu sem verið var að undirbúa til flutnings þegar ljósmyndari AFP átti leið hjá. Kúpan verður vafalaust seld fyrir himinháar upphæðir. Nashyrningseðlur höfðu stóra beinplötu á höfði og löng augabrúnahorn. Eðlur af þessari tegund lifðu á svæðum sem nú eru vestanverð Bandaríkin og Kanada.