AFP
Aðstæður fyrir flugsamgöngur til og frá Grænlandi hafa tekið stakkaskiptum eftir að ný flugbraut var lögð við flugvöllinn í Nuuk, en fyrsta farþegaþotan lenti þar á fimmtudag.
„Þetta er risaáfangi fyrir Grænlendinga og gefur okkur einnig aukin tækifæri til að þjónusta okkar flugfarþega með fleiri tengimöguleikum. Þetta eru spennandi tímar,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs hjá Icelandair, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Icelandair hyggst fljúga til Nuuk næsta sumar frá Keflavík með Boeing 737 MAX8-vélum og hefur samið við Air Greenland um samtengingu á flugi milli félaganna. Tómas segir mikilvægt fyrir Icelandair að geta tengt Nuuk við leiðakerfi félagsins frá Keflavík til Evrópu og N-Ameríku. » 18