Kjósum einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsi, trygg landamæri, skynsama auðlindanýtingu og öryggisnet fyrir þá sem þurfa á því að halda.
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson

Guðlaugur Þór Þórðarson

Í dag ganga Íslendingar að kjörborðinu og taka ákvörðun um hverjum er best treystandi til að móta framtíð landsins og fara með stjórnartaumana næstu fjögur árin. Enginn skortur hefur verið á flóknum úrlausnarefnum á undanförnum árum og nægir þar að nefna heimsfaraldur og eldana á Reykjanesskaga. Þessum áföllum hafa fylgt áskoranir í efnahagsmálum sem við Sjálfstæðismenn höfum mætt af fullum þunga. Árangur ábyrgrar efnahagsstjórnar sést vel nú þegar verðbólga lækkar hratt og vaxtalækkunarferli er hafið. Stefna Sjálfstæðisflokksins grundvallast einmitt á stöðugleika með skýrri framtíðarsýn fyrir alla sem landið byggja.

Við búum við velsæld og erum rík af auðlindum. Hagsæld okkar í framtíðinni mun byggjast á traustri hagstjórn, tryggum landamærum og skynsamlegri nýtingu auðlinda. Ég fullyrði að enginn flokkur hefur skýrari stefnu

...