Guðrún Júlía Haraldsdóttir fæddist 13. október 1949. Hún lést 19. nóvember 2024.
Útför hennar fór fram 29. nóvember 2024.
Elsku hjartans Júlla frænka okkar er farin, það er svo óraunverulegt.
Við systur erum svo heppnar að hafa átt þessa skemmtilegu og fallegu föðursystur. Júlla var engri lík, eins og þeir sem þekktu hana vita. Hláturinn hennar og húmorinn var einstakur.
Samband okkar systra við Júllu var líka einstakt. Júlla var frænkan sem við gátum spjallað við um lífið og tilveruna. Fengið ráð við öllum lífsins verkefnum og þá sérstaklega fengum við allar þær helstu fréttir af föðurfjölskyldunni sem komu okkur við, en Júlla lá nú ekki á skoðunum sínum og það fannst okkur skemmtilegast.
Það var alltaf fjör í
...