Kristín Áslaug Magnúsdóttir, alltaf kölluð Stína, fæddist 16. apríl 1965. Hún lést eftir mjög stutta en erfiða baráttu við krabbamein 11. september 2024.
Foreldrar Stínu: Magnús Helgason, f. 13. apríl 1939, býr á Hlévangi í Reykjanesbæ, og Kolbrún Ástráðsdóttir, f. 11. janúar 1939, d. 16. apríl 2009. Bræður Stínu: Ragnar, f. 19. janúar 1962, og Helgi Jón, f. 7. september 1973.
Stína átti sex dætur: 1) Kolbrún Viktorsdóttir, f. 11. október 1981, maki Ingimundur Sveinn Pétursson. Börn Kolbrúnar: Almar Óli, f. 27. desember 1999, Halldór Matthías, f. 13. desember 2000, maki Þorbjörg Fjóla, þeirra barn Esja Rut, f. 3. janúar 2023, Tinna Ösp, f. 19. nóvember 2002, maki Tómas Dziadkowiec, börn Davíð Þór, f. 8. mars 2018, og Dimmey Val, f. 18. febrúar 2024, Kolbrún Petra, f. 14. janúar 2011, Sveinn Magnús, f. 6. nóvember 2013. 2) Sonja Eir Björnsdóttir,
...