Fyrsta sunnudag í aðventu, 1. desember, verður haldin aðventuhátíð í Langholtskirkju kl. 17. Allir kórar kirkjunnar syngja aðventu- og jólatónlist hver í sínu lagi og saman, að því er fram kemur í tilkynningu. Auk þess leikur Lúðrasveitin Svanur „skemmtileg jólalög, lesin verður jólasaga, elstu börnin í Krúttakórnum flytja Lúsíuleik og kirkjugestir syngja inn aðventuna“. Aðgangur er ókeypis.