Arnór Sigurjónsson
Arnór Sigurjónsson

Árásarstríð Rússlands í Úkraínu og aukin spenna í alþjóðasamskiptum veldur því að Ísland stendur nú frammi fyrir gerbreyttu landslagi í varnarmálum. Arnór Sigurjónsson, fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, segir þörf á sérstöku varnarmálaráðuneyti og varnarmálanefnd á Alþingi. Taka verði málaflokkinn af mun meiri alvöru, einkum í ljósi þeirrar eldfimu stöðu sem uppi er í Evrópu.

Brjótist út vopnuð átök utan landamæra Úkraínu segir Arnór landfræðilega legu Íslands gera landið að beinum þátttakanda í stríðinu, hvort sem Íslendingum líki það betur eða verr. Lega landsins sé „mjög mikilvæg“ fyrir eftirlit með umferð skipa og kafbáta auk birgðaflutninga frá Norður-Ameríku og Kanada til Evrópu. » 10