Flokkur fólksins er stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi, en hann hlaut 20% atkvæða og tvo menn kjörna á Alþingi. Næstur honum kom Sjálfstæðisflokkurinn með 19,6% atkvæða, en Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3%
Fögnuður Þær Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Inga Sæland fóru ekki leynt með gleði sína þegar kosningasigur flokksins í Suðurkjördæmi varð ljós.
Fögnuður Þær Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Inga Sæland fóru ekki leynt með gleði sína þegar kosningasigur flokksins í Suðurkjördæmi varð ljós. — Morgunblaðið/Karítas

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Flokkur fólksins er stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi, en hann hlaut 20% atkvæða og tvo menn kjörna á Alþingi. Næstur honum kom Sjálfstæðisflokkurinn með 19,6% atkvæða, en Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3%. Síðan koma Miðflokkurinn með 13,6%, Framsóknarflokkurinn með 12% og Viðreisn með 11,2%.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti Flokks fólksins, er því 1. þingmaður kjördæmisins, en hún er jafnframt orðin forseti Alþingis og verður

...