Hlynur Bæringsson, körfuboltamaðurinn reyndi úr Stjörnunni, er orðinn næstleikjahæsti leikmaður sögunnar í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Hlynur, sem er orðinn 42 ára gamall, lék sinn 410. leik í deildinni þegar Stjarnan burstaði Þór úr Þorlákshöfn í Garðabæ á laugardaginn, 124:82. Hlynur gæti slegið metið í vetur en Marel Guðlaugsson á leikjametið sem er 419 leikir. Hann lék með Grindavík, Haukum og KR á árunum 1987 til 2012.