Breiðholt Króatinn Dani Koljanin er genginn til liðs við ÍR frá KR.
Breiðholt Króatinn Dani Koljanin er genginn til liðs við ÍR frá KR. — Morgunblaðið/Eggert

Körfuboltamaðurinn Dani Koljanin er genginn til liðs við ÍR frá KR. Króatinn, sem er 28 ára gamall, rifti samningi sínum við KR-inga í gær og skrifaði svo undir samning við ÍR skömmu síðar. Hann gekk til liðs við KR árið 2021 og hefur leikið með liðinu allar götur síðan. Hann hefur skorað sjö stig og tekið fimm fráköst að meðaltali í átta leikjum KR-inga á tímabilinu. ÍR, sem er nýliði í deildinni líkt og KR, er í ellefta og næstneðsta sætinu með 4 stig.