Gervigreind Mannauðurinn tekur endanlegar ákvarðanir.
Gervigreind Mannauðurinn tekur endanlegar ákvarðanir. — AFP/Kirill Kudryavtsev

Hagstofa Íslands kynnti í gær að stefnt væri að því að nýta gervigreind til að hámarka skilvirkni, gæði og áreiðanleika í gagnaöflun, vinnslu og miðlun hagtalna.

Hagstofan gengur svo langt að telja gervigreindina geta verið hluta af menningu stofnunarinnar.

Stefnan nær einnig til djúptauganeta og mállíkana sem leysa flóknari verkefni, kemur fram í tilkynningu.

Að mati stofnunarinnar er helsti ávinningur af innleiðingu gervigreindar einkum falinn í aukinni skilvirkni í hagskýrslugerð, aukinni hæfni starfsfólks og bættri þjónustu út á við. Gervigreind verður nýtt til að bæta úrvinnslu gagna og tímanleika í útgáfu hagtalna auk þess sem hún mun styðja við nýsköpun í greiningu gagna.

Ítrekað er þó að endanlegar ákvarðanir muni alltaf

...