Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri, félagið tilkynnti um hærri áætlun.
Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri, félagið tilkynnti um hærri áætlun. — Morgunblaðið/Karitas

Fasteignafélagið Heimar tilkynnti í gær að afkomuspá félagsins fyrir árið 2024 yrði hærri en áður var tilkynnt. Félagið gerði áður ráð fyrir leigutekjum upp á 13,7-13,9 milljarða og EBITDA upp á 9,8-10 milljarða.

Eftir uppfærða áætlun er gert ráð fyrir að leigutekjur nemi 13,9-14,1 milljarði og EBITDA 9,95-10,15 milljörðum.

Betri nýting á leigurýmum og minni kostnaður vegna rekstrar og viðhalds skýrir aukninguna.

Stutt er síðan félagið kynnti skipulagsbreytingar og breytingar á skipuriti þar sem sjálfbærni og rekstur í fasteignum var lagt niður sem stoðsvið. Á þeim tíma nefndi forstjóri félagsins ástæðuna einkum þá að auka hagkvæmni og bæta þjónustu við viðskiptavini.

Áætlunin nú er aukin um 200 milljónir í leigutekjum og 150 milljónir í EBITDA. Stutt er til áramóta en félagið

...