Los Bomboneros Þrennir suðrænir jólatónleikar verða haldnir í Salnum.
Los Bomboneros Þrennir suðrænir jólatónleikar verða haldnir í Salnum.

Hljómsveitin Los Bomboneros heldur þrenna tónleika á aðventunni í Salnum, þrjá miðvikudaga í röð. „Jólaundirbúningur hljómsveitarinnar Los Bomboneros hefst á vænni flís af feitum sauð því hljómsveitin býður til sannkallaðrar veislu í desember þar sem ekkert verður til sparað,“ segir í tilkynningu.

Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld, 4. desember, kl. 20 þar sem „hefðir bóleró-formsins og son cubano-spilastílsins verðar heiðraðar“, að því er segir í tilkynningunni. Unnsteinn Manuel verður sérstakur gestur. Hinn 11. desember verður hljómur strengjahljóðfæranna í forgrunni. „Við fáum til okkar Sólveigu Thoroddsen með hörpurnar sínar og Sergio Coto með lútur og gítara og leitum aftur í akústíska tíma að kertaljósum og klæðum rauðum,“ segir um tónleikana. Hljómsveitin heldur síðan jólaball 18. desember og er það sagt „lýðheilsubætandi svitakast með Los Bomboneros ásamt Óskari Guðjónssyni og Samúel Jóni Samúelssyni“.