Svo sagði Steinn þegar honum fannst ganga úr hófi gagnrýni á framgöngu kvenna.
Nú beinist athyglin aftur að konum, sem eru að reyna stjórnarmyndun.
Þær eru eltar á röndum og ætlast helst til þess að þær ljúki þessu meðan drukkið er úr kaffibolla.
Þetta er meira alvörumál en svo og þær verða sjálfar leiðar á eilífum myndatökum og spurningum hvort þetta sé ekki að smella.
Fjölmiðlar gætu alveg setið á sér: þetta verður stjórn, freistingin er svo sterk fyrir alla aðila og þær fara í sögubækurnar, allar þrjár.
Hins vegar má skollinn vita hvort þetta verður samhent stjórn þriggja eða þrjár stjórnir.
Sagan geymir dæmi um hvort tveggja
...