Flóðreka, lifandi dansinnsetning undir stjórn Aðalheiðar Halldórsdóttur, verður flutt í Hafnarhúsi í dag, 12. desember, kl. 18-20. Þar munu „dansarar Íslenska dansflokksins stíga inn í hið margrómaða Flóð Jónsa í Hafnarhúsinu“, að því er segir í tilkynningu.
„Í innsetningunni ganga áhorfendur í myrkvað rými, umluktir mistri og óræðum ilmi. Allt um kring óma hljóð sem eiga uppruna sinn í náttúrunni, stafrænni úrvinnslu og mannsröddinni. Hljóðmyndin vex og stigmagnast, skynjunin nær frá eyrum og ofan í maga, ómurinn flæðir yfir líkamann í bylgjum. Ljósrák í loftinu bregst við hljóðinu og ýtir enn frekar undir þá marglaga skynjun sem ferlið býður upp á,“ segir þar jafnframt.
Gestum er frjálst að koma og fara að vild á meðan dansinn stendur yfir. Aðgöngumiði á safnið gildir, en þar verður opið til kl. 22.