— Morgunblaðið/Eyþór

„Lengst af hef ég hugsað að það þýddi ekkert að kvarta. Ég verð bara að gera það sem ég get til að lifa þetta af því ég vil vera hérna nálægt fjölskyldunni,“ segir Guðrún Hrólfsdóttir, íbúi í Árskógum 7, en stórt vöruhús er risið í mikilli nálægð við íbúðarhúsið. „Þeir voru svo sniðugir að hafa þennan vegg grænan, sennilega til að minna mann á gróðurinn,“ segir Guðrún í samtali við Morgunblaðið. » 6