Nú vinna leiðtogar þeirra þriggja flokka sem juku mest fylgi sitt í þingkosningunum 30. nóvember 2024 að stjórnarmyndun, þær Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland. Samsteypustjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks…

Nú vinna leiðtogar þeirra þriggja flokka sem juku mest fylgi sitt í þingkosningunum 30. nóvember 2024 að stjórnarmyndun, þær Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland. Samsteypustjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins undir forsæti Kristrúnar er vissulega annar af tveimur rökréttum möguleikum eftir kosningarnar. Hinn er samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks undir forsæti Bjarna Benediktssonar. Í rauninni ræður Viðreisn því hvor möguleikinn verður að veruleika, en hún virðist afhuga samstarfi við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk, þótt skammt sé milli flokkanna þriggja í efnahagsmálum.

Á Íslandi hafa stjórnarmyndanir þó iðulega verið eins og langdregin leikrit, sem stjórnmálaflokkar setja á svið til þess að þurfa ekki að efna gáleysisleg loforð. Stundum hafa þær tekið óvænta stefnu þegar hefur komið að vali

...