Körfuknattleikskonan Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir hefur samið við Hamar/Þór, nýliðana í úrvalsdeildinni, um að leika með liðinu út þetta keppnistímabil. Emma Sóldís er tvítugur bakvörður sem hefur leikið fjóra A-landsleiki fyrir Íslands hönd og fjölda leikja með yngri landsliðunum. Hún er uppalin hjá KR en lék síðan með Fjölni og Haukum og hefur í hálft annað ár verið í Bandaríkjunum og leikið með liði Liberty-háskóla.