Á árinu 2024 hefur S&P 500-vísitalan staðið sig vel, árleg ávöxtun upp á 28,55% til dagsins í dag. Þetta felur í sér 26,86% hækkun á verði hlutabréfa auk 1,69% ávöxtunar vegna arðgreiðslna. Þessi aukning endurspeglar almennt sterkan hagvöxt í…
Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku banka.
Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku banka.

Á árinu 2024 hefur S&P 500-vísitalan staðið sig vel, árleg ávöxtun upp á 28,55% til dagsins í dag. Þetta felur í sér 26,86% hækkun á verði hlutabréfa auk 1,69% ávöxtunar vegna arðgreiðslna. Þessi aukning endurspeglar almennt sterkan hagvöxt í Bandaríkjunum, aukinn hagnað fyrirtækja, lægri verðbólgu og bjartsýni á hlutabréfamarkaði.

Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku segir að ávöxtunin á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum hafi farið með himinskautum á árinu.

„Þessi mikla hækkun frá áramótum hefur að hluta til verið dregin áfram af auknum hagnaði fyrirtækja, sem getur vel verið sjálfbært til lengri tíma. Þau fyrirtæki sem hafa haft eitthvað með gervigreind að gera hafa gert stórlega vel á árinu. Verðlagning og kennitölur á bandaríska markaðnum hafa hins vegar einnig hækkað mikið og verðlagningin í Bandaríkjunum er orðin svakalega

...