Við afgreiðslu fjáraukalaga ársins 2024 á Alþingi var gert ráð fyrir 200 milljóna króna framlagi vegna ófyrirséðs kostnaðar við viðgerð á Breiðafjarðarferjunni Baldri. „Þessi kostnaður verður til af kaupverði, flutningi ferjunnar, kostnaði…
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Við afgreiðslu fjáraukalaga ársins 2024 á Alþingi var gert ráð fyrir 200 milljóna króna framlagi vegna ófyrirséðs kostnaðar við viðgerð á Breiðafjarðarferjunni Baldri.
„Þessi kostnaður verður til af kaupverði, flutningi ferjunnar, kostnaði vegna kaupanna, breytinga og uppfærslna sem gerðar voru á ferjunni áður en hún fór í rekstur til þjónustuaðila. Stærstur hluti þessa kostnaðar féll til á árinu 2023 en hluti af kostnaði vegna breytinganna fellur til á árinu 2024,“ segir í skriflegu svari Vegagerðarinnar, þegar leitað var skýringa á þessu viðbótarframlagi.
„Þegar fjárveiting til kaupanna var ákveðin var ekki að fullu ljóst í hversu miklar viðgerðir þyrfti að ráðast í til að gera skipið sem best úr garði
...