Neytendastofa hefur skoðað matseðla og markaðsefni veitingastaða í miðbæ Reykjavíkur vegna ábendinga um notkun erlendra tungumála í markaðssetningu í miðbænum. „Tekin var skoðun á 83 veitingastöðum og kom í ljós að aðeins tveir höfðu engan matseðil við inngöngudyr
Veitingarekstur Neytendastofa tók matseðla til skoðunar.
Veitingarekstur Neytendastofa tók matseðla til skoðunar. — Morgunblaðið/Eggert

Ómar Friðriksson

omfr@mbl.is

Neytendastofa hefur skoðað matseðla og markaðsefni veitingastaða í miðbæ Reykjavíkur vegna ábendinga um notkun erlendra tungumála í markaðssetningu í miðbænum.

„Tekin var skoðun á 83 veitingastöðum og kom í ljós að aðeins tveir höfðu engan matseðil við inngöngudyr. Algengt var að matseðill væri birtur á íslensku og erlendu tungumáli en þó voru gerðar athugasemdir við að 34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku. Þessu til viðbótar voru gerðar athugasemdir við að sex veitingastaðir sem höfðu matseðla sýnilega á íslensku birtu annað kynningarefni eingöngu á ensku. Í síðastnefnda tilvikinu sendi Neytendastofa veitingastöðunum leiðbeiningar um skyldu til að notast við íslensku í markaðsefni,“ segir í frétt um málið á vefsíðu

...