Óli Örn Eiríksson, teymisstjóri atvinnu- og borgarþróunarteymis á skrifstofu borgarstjóra í Reykjavík, segir að vegna mikilla anna hjá borginni verði einhver dráttur á svörum varðandi tvær lóðir undir bænahús í borginni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Óli Örn Eiríksson, teymisstjóri atvinnu- og borgarþróunarteymis á skrifstofu borgarstjóra í Reykjavík, segir að vegna mikilla anna hjá borginni verði einhver dráttur á svörum varðandi tvær lóðir undir bænahús í borginni. Stefnt sé að því að þau berist blaðamanni fyrir lok janúar.
Fyrirspurnin varðaði úthlutun lóðar undir mosku á Suðurlandsbraut 76 og úthlutun á lóð við Mýrargötu undir kirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Spurt var hversu lengi væri hægt að halda lóð án þess að hefja framkvæmdir. „Umræddir aðilar munu hafa lagt fram teikningar til að rjúfa frestunartímann en er hægt að gera það út í hið óendanlega,“ var spurt.
Tilefnið er frétt í Morgunblaðinu 17. desember sl. þar sem fram kom að bygging mosku
...