Reykjavíkurborg mun ekki hafa frumkvæði að því að fækka akreinum á Hringbraut eða breyta núverandi hringtorgi á mótum Hringbrautar, Eiðsgranda og Ánanausta í T-gatnamót. Þetta er eitt atriða í samkomulagi Reykjavíkurborgar og Seltjarnarness um samgöngumál í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins
Gatnamótin Áhugi var á því að breyta þeim í T-gatnamót en það hugnaðist Seltirningum ekki. Ekkert verður af því.
Gatnamótin Áhugi var á því að breyta þeim í T-gatnamót en það hugnaðist Seltirningum ekki. Ekkert verður af því. — Morgunblaðið/Eggert

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Reykjavíkurborg mun ekki hafa frumkvæði að því að fækka akreinum á Hringbraut eða breyta núverandi hringtorgi á mótum Hringbrautar, Eiðsgranda og Ánanausta í T-gatnamót.

Þetta er eitt atriða í samkomulagi Reykjavíkurborgar og Seltjarnarness um samgöngumál í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins.

Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri undirrituðu samkomulagið 12. desember sl. og hefur það verið samþykkt í borgarráði.

Árið 2023 bárust af því fréttir að einhverjir fulltrúar meirihlutaflokkanna í Reykjavík teldu að til framtíðar væri æskilegt breyta hringtorginu við JL-húsið í klassísk ljósastýrð T-gatnamót. Þór bæjarstjóri mótmælti þessum

...