Tilkynnt var í vikunni að Icelandair hefði sameinað starfsemi sína á höfuðborgarsvæðinu, utan flugvallarstarfsemi, í nýju húsi á Flugvöllum í Hafnarfirði.
Húsnæðið er viðbygging við þjálfunarsetur Icelandair sem reist var árið 2014 og mun bókleg og verkleg þjálfun áhafna, skrifstofustarfsemi, þjónustuver, þjónustuskrifstofa og stjórnstöð sameinast undir einu þaki, auk þess sem flugáhafnir koma saman í húsinu áður en haldið er til Keflavíkurflugvallar.
Fram kemur í tilkynningu félagsins að húsið sé hannað af Nordic Office of Architecture og við hönnun hafi sveigjanleiki, hagkvæmni og sjálfbærni verið höfð að leiðarljósi, bæði hvað varðar byggingu og rekstur til framtíðar. Byggingin verður BREEAM-vottuð svokölluð, sem staðfestir að húsið hafi verið byggt með það í huga að áhersla sé á umhverfis- og öryggisþætti, góða orkunýtingu sem og heilsu og vellíðan starfsfólks.
Elísabet Helgadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Icelandair, sagði af
...