Séra Hjálmar Jónsson sendir þættinum góða kveðju um nafna sinn: „Svo orti Hjálmar Freysteinsson um áhættusamt starf jólasveinanna, t.d. þegar G-strengirnir voru mest í tísku: Nærklæði af nýjasta tagi eru nokkuð í skjólminna lagi

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Séra Hjálmar Jónsson sendir þættinum góða kveðju um nafna sinn: „Svo orti Hjálmar Freysteinsson um áhættusamt starf jólasveinanna, t.d. þegar G-strengirnir voru mest í tísku:

Nærklæði af nýjasta tagi

eru nokkuð í skjólminna lagi.

Er maddama rík

mátaði' ein slík

þá leið yfir Gluggagægi.

Ingólfur Ómar Ármannsson óskar gleðilegra jóla og gaukar vísu að Vísnahorninu:

Viltu tendra vonarbál

veittu styrk þeim hrjáða.

Leggðu rækt við líf og sál

og láttu hjartað

...