Íslenska kvikmyndin Guðaveigar verður frumsýnd annan í jólum, 26. desember. Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson skrifa handritið og leikstýra myndinni en meðal leikara eru Hilmir Snær Guðnason, Vivian Ólafsdóttir, Halldór Gylfason, Þröstur Leó Gunnarsson og Sverrir Þór Sverrisson.
„Fjórir prestar halda til Rioja á Spáni til að finna messuvín í meiri gæðum en þekkst hefur á Íslandi hingað til. Þeir eru svo uppteknir við vinnu sína og smakkið að þeir missa af kraftaverkunum sem gerast allt í kringum þá,“ segir um myndina.