Búðardalur Þéttbýli Dalabyggðar þar sem íbúar eru nú 663 talsins.
Búðardalur Þéttbýli Dalabyggðar þar sem íbúar eru nú 663 talsins. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Gert er ráð fyrir 225 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu af rekstri Dalabyggðar á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins sem fyrir liggur. Miðað er við óbreytt álagningarhlutfall útsvars og fasteignaskatta og að hækkun gjaldskráa verði í flestum tilfellum 3,9%. Jákvæður rekstur sveitarfélagsins gefur svigrúm til vaxtar og viðgangs. Einnig hefur áhrif uppgjör af sölu eigna á Laugum í Sælingsdal; skólaþorpi sem nú er ferðaþjónustubær.

Nú er búist við að Dalabyggð komi út í tæplega 40 millj. kr. plús á þessu ári, sem ásamt öðru gerir mögulegt að fara í fjárfestingar. Þar má nefna að nú eru hafnar framkvæmdir við byggingu íþróttahúss og sundlaugar í Búðardal, sem er stórt verkefni. Á næsta ári verður varið alls einum milljarði króna í þessa uppbyggingu, sem á að ljúka snemma á árinu 2026.

Sveitarstjórn Dalabyggðar ákvað að viðhalda því sem gilt

...