Knattspyrnumaðurinn Logi Hrafn Róbertsson hefur samið við króatíska félagið NK Istra. Hann kemur á frjálsri sölu frá uppeldisfélaginu FH og samdi til sumarsins 2028. Þrátt fyrir að koma á frjálsri sölu þarf Istra, sem leikur í efstu deild í Króatíu, að greiða FH uppeldisbætur vegna ungs aldurs Loga. Hann er tvítugur miðju- og varnarmaður sem býr þrátt fyrir ungan aldur yfir mikilli reynslu. Hefur Logi Hrafn leikið 80 leiki fyrir FH í efstu deild og skorað tvö mörk.