Skáldsaga Stargate ★★★★½ Eftir Ingvild Rishøi Kari Ósk Grétudóttir þýddi. Benedikt bókaútgáfa, 2024. Kilja í stóru broti, 142 bls.
Jólasaga „Það er óhætt að mæla með lestri á þessari fallegu, vel skrifuðu og hlýlega mannlegu sögu,“ skrifar rýnir um Stargate eftir Ingvild Rishøi.
Jólasaga „Það er óhætt að mæla með lestri á þessari fallegu, vel skrifuðu og hlýlega mannlegu sögu,“ skrifar rýnir um Stargate eftir Ingvild Rishøi. — Ljósmynd/Mathias Fossum

Bækur

Einar Falur

Ingólfsson

Norræna samtímafrásögn af systrum sem búa við ömurlegar aðstæður hjá drykkjusjúkum föður, móðurlausar og án nánast nokkurs stuðnings nema hvor af annarri, kæmi ekki á óvart að sjá skrifaða í nöturlegum raunsæisstíl, með þungri ádeilu á kerfið sem bregst brotinni fjölskyldunni. En norski höfundurinn Ingvild Rishøi fer aðra leið – hún skrifar um efnið ljúfa og launfyndna „jólasögu“ en það er undirtitill Stargate. Tónninn í frásögninni er fallegur, þar er gott fólk, dætrunum þykir vænt um pabba sinn, og svo eru að koma jól. En þær systur minnast sín á milli á eina þekktustu jólasöguna, þá um litlu stúlkuna

...