Fiskveiðar Ætlunin er að fjölga verulega veiðidögum í strandveiðikerfinu.
Fiskveiðar Ætlunin er að fjölga verulega veiðidögum í strandveiðikerfinu. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði og fjármála- og efnahagsráðherra nýrrar ríkisstjórnar, skrifaði ásamt fjórum öðrum hagfræðingum grein þar sem strandveiðar voru bornar saman við veiðar undir aflamarkskerfi eins og því sem notað er til að stjórna öðrum veiðum hér við land. Greinin var birt árið 2021 í ritinu Regional Studies in Marine Science og þar segir að Ísland hafi árið 2009 tekið upp strandveiðar fyrir litla báta þar sem allir hafi opinn aðgang.

Í greininni segir að niðurstaða rannsóknar höfunda sé eins og við mætti búast, að strandveiðarnar séu að meðaltali óarðbærar. Þar segir einnig að „strandveiðarnar séu ekki efnahagslega skynsamlegar vegna þess að það væri mun ódýrara að veiða fiskinn með skipum sem þegar eru innan aflamarkskerfisins.“ Fiskveiðar í því kerfi séu hagkvæmar. Þar að auki sé megnið af aflanum í strandveiðunum þorskur, sem sé enn hagkvæmari í

...