Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir eru að hefjast við nýjar höfuðstöðvar Tesla á Íslandi. Þær munu rísa á tæplega 16 þúsund fermetra lóð í Borgahellu 6 í Hafnarfirði.
Félagið Bæjarbyggð, dótturfélag Eignabyggðar, mun reisa höfuðstöðvarnar sem verða stálgrindarhús með steyptum kjarna. Leigusamningur var undirritaður fyrir jól og er áformað að afhenda húsið öðrum hvorum megin við áramót 2026/27.
Brynjólfur Þorkell Brynjólfsson, stjórnarmaður hjá Bæjarbyggð, segir Tesla á Íslandi hafa skoðað aðrar staðsetningar á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýjar höfuðstöðvar. Niðurstaðan hafi orðið sú að lóðin í Borgahellu hentaði best en Bæjarbyggð hafi getað boðið upp á stóra lóð með mikla möguleika með því að sameina fjórar lóðir í eina. Á teikningunum hér fyrir ofan má sjá hvernig
...