Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður og leikmaður Inter á Ítalíu, var valin í lið ársins í ítölsku A-deildinni af DAZN. Cecilía gekk til liðs við Inter að láni frá Bayern München í Þýskalandi síðasta sumar. Hún hefur leikið 11 leiki með liðinu á þessu tímabili og haldið hreinu sex sinnum. Inter situr í öðru sæti deildarinnar með 28 stig eftir 13 leiki. Cecilía, sem er 21 árs, hefur leikið 13 A-landsleiki en hún er uppalin hjá Aftureldingu.