Árið 2024 var það kaldasta á þessari öld á Íslandi. Þetta er þveröfugt við stöðuna á jörðinni allri þar sem leiddar hafa verið að því líkur að 2024 verði hlýjasta ár sögunnar. Trausti Jónsson veðurfræðingur segir á Moggablogginu að ársmeðalhitinn á Íslandi á nýliðnu ári standi í 3,4 stigum
Napurt Árinu 2024 lauk með mikilli frosthörku víðsvegar um landið.
Napurt Árinu 2024 lauk með mikilli frosthörku víðsvegar um landið. — Morgunblaðið/Hákon

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Árið 2024 var það kaldasta á þessari öld á Íslandi. Þetta er þveröfugt við stöðuna á jörðinni allri þar sem leiddar hafa verið að því líkur að 2024 verði hlýjasta ár sögunnar.

Trausti Jónsson veðurfræðingur segir á Moggablogginu að ársmeðalhitinn á Íslandi á nýliðnu ári standi í 3,4 stigum.

Það er -0,6 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020. Hitinn er -1,0 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára. „Árið er því það kaldasta síðan 1998, en þá var sjónarmun kaldara en nú,“ segir Trausti.

Og bætir

...