Nýjustu aflögunargögn frá Veðurstofunni, frá 30. desember, sýna að hraðinn á kvikuinnflæði undir Svartsengi er svipaður og hann var fyrir síðasta eldgos sem hófst 20. nóvember sl. Ef kvikusöfnun verður á svipuðum hraða má gera ráð fyrir að 12…
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
Nýjustu aflögunargögn frá Veðurstofunni, frá 30. desember, sýna að hraðinn á kvikuinnflæði undir Svartsengi er svipaður og hann var fyrir síðasta eldgos sem hófst 20. nóvember sl. Ef kvikusöfnun verður á svipuðum hraða má gera ráð fyrir að 12 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast í kvikuhólfið undir Svartsengi í lok mánaðar og strax í fyrstu viku febrúar gæti sú tala orðið 13,5 milljónir rúmmetra.
Líkanreikningar Veðurstofu sýna að líkur aukast mikið á kvikuhlaupi þegar kvikumagnið hefur náð 12-15 milljónum rúmmetra
...