Fornleifafræðingar á Bretlandi rannsaka nú slóð fótspora sem varðveist hafa í kalksteini, en spor þessi eru um 166 milljóna ára gömul og voru mörkuð af risaeðlum. Alls eru þetta um 200 fótspor og er gönguleiðin forna alls um 150 metra löng. Hugsanlegt er að slóðin sé enn lengri, það mun koma í ljós við frekari rannsókn. Aldrei fyrr hafa álíka minjar fundist á Bretlandseyjum.
Sporin eru eftir tvær risaeðlur og liggja þau samsíða. Er önnur eðlan talin hafa verið fenriseðla en hin rumeðla. Hin fyrrnefnda var jurtaæta með langan háls. Eðlur af þessari tegund hafa fundist víðar, s.s. í Bandaríkjunum. Í nóvember árið 1990 fundust bein fenriseðlu í Wyoming. Þau sýndu að skepnan var um 21 metri á lengd og jafnframt stærsta fenriseðla sem fundist hefur. Rumeðlur voru um níu metra löng rándýr og voru eðlur af þessari tegund í hópi þeirra fyrstu sem vísindamenn grófu upp. Þær gengu uppréttar á tveimur fótum og höfðu stutta framstæða griparma. Auk þess að vera með beittar klær
...