Kúlupenni frá Hugo Boss, fæst hjá Eymundsson og kostar 14.100 kr.
Kúlupenni frá Hugo Boss, fæst hjá Eymundsson og kostar 14.100 kr.

Nú er góður tími til að endurnýja fartölvuna ef þess þarf, næla sér í góðan penna og dagatal. Þó að allt sé hægt í tölvunni þá finnst mörgum þægilegra að hafa hlutina skrifaða fyrir framan sig á skrifborðinu. Það má líka leyfa sér ný föt núna og hafðu þá þægindin í fyrirrúmi. Flottur jogginggalli, strigaskór, hlý úlpa og flott yfirskyrta eru flíkur sem þú notar mikið. Svo er mikilvægt að eiga flott nestisbox og góðan brúsa.