Inga Sæland
Inga Sæland

Íslenskukennsla í skólum hefur verið nokkuð til umræðu en kennsla í íslensku fer fram víðar. Hingað til hafa landsmenn skilið orðið loforð á ákveðinn hátt, en það reyndist misskilningur.

Nú hefur formaður Flokks fólksins upplýst um að hin „svokölluðu kosningaloforð eru viljayfirlýsingar“. Og hún virðist einnig telja að nái flokkur ekki að minnsta kosti 51% atkvæða sé hann óbundinn af þessum „svokölluðu“ loforðum.

Þar með er það svo að orðið loforð þýðir ekki loforð, að minnsta kosti ekki ef hægt er að hengja kosninga- framan á orðið. Þetta þýðir auðvitað, sem er framboðum framtíðarinnar mjög til þæginda, að svik eru ekki svik, heldur eitthvað allt annað.

Flokkur fólksins lofaði hátíðlega að skattlaus lágmarksframfærsla upp á 450 þúsund á mánuði

...