Kærleikans Guð gefi ykkur öllum birtu og yl í hjarta til að ganga til móts nýtt ár. Ég bið þess að þið mættuð náðar hans njóta og blessun hljóta.
Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson

Sigurbjörn Þorkelsson

Ekkert ár er án vonbrigða og einhvers konar áfalla eða þjáninga. Líkt og ekkert ár er gleðisnautt eða án vonar og hamingjustunda og mögulega bross í gegnum tárin, umvefjandi kærleika og jafnvel bara umlykjandi dýrmætra manneskja, engla og bæna.

Það er og verður alltaf svo sárt að missa og sakna. En það er gott að geta grátið. Því tárin eru dýrmætar daggir. Perlur úr lind minninganna. Minninga sem þú átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið. Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna.

Gráttu, „því að sælir eru sorgbitnir því að þeir munu huggaðir verða,“ sagði Jesús í fjallræðunni frægu forðum. Já, sælir eru þeir sem eiga von á Jesú Krist í hjarta, því að þeir munu lífið erfa og eignast framtíð

...