Karlmaður var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi
í Héraðsdómi Reykjaness í byrjun desember fyrir að beita systurdóttur sína kynferðislegri áreitni. Stúlkan var sjö til átta ára gömul þegar brotið átti sér stað árið 2021.
Manninum var einnig gert að greiða milljón króna í miskabætur og 677 þúsund krónur í sakarkostnað.
Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi snert læri stúlkunnar og látið hana snerta beran getnaðarlim sinn.
Maðurinn játaði háttsemi sína undanbragðalaust og féllst á bótaskyldu auk þess að samþykkja þá fjárhæð sem krafa var gerð um.
Maðurinn hafði til þessa hreint sakavottorð. Fram kemur að fullnustu refsingar verði frestað og mun hún falla niður að liðnum tveimur árum ef hann heldur
...