Textíl- og fatahönnuðurinn Brynja Emilsdóttir opnar sýninguna Værð í dag, laugardaginn 4. janúar, kl. 16-19 í Grafíksalnum við Tryggvagötu. „Í tilefni af fimmtugsafmæli mínu langaði mig að gera eitthvað sem veitir mér ánægju og kem aftur og aftur að …
Textíll Fatahönnuðurinn Brynja Emilsdóttir sýnir Værð í Grafíksalnum.
Textíll Fatahönnuðurinn Brynja Emilsdóttir sýnir Værð í Grafíksalnum.

Textíl- og fatahönnuðurinn Brynja Emilsdóttir opnar sýninguna Værð í dag, laugardaginn 4. janúar, kl. 16-19 í Grafíksalnum við Tryggvagötu.

„Í tilefni af fimmtugsafmæli mínu langaði mig að gera eitthvað sem veitir mér ánægju og kem aftur og aftur að í gegnum lífið,“ er haft eftir listakonunni í tilkynningu.

„Þessi sýning er ekki síst fyrir sjálfa mig á þessum tímamótum enda textíllinn löngu orðinn hluti af sjálfri mér.“

Sýningin verður opin dagana 5.-12. janúar klukkan 16-18 alla daga.