Bjarni Þjóðleifsson, fv. yfirlæknir og prófessor, lést 30. desember á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, 85 ára að aldri.
Bjarni fæddist á Akranesi 29. janúar 1939 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Guðrún Bjarnadóttir, kaupakona og húsfreyja, og Þjóðleifur Gunnlaugsson, rafstöðvarstjóri og kaupmaður.
Bjarni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1959, settist í læknadeild HÍ um haustið og útskrifaðist þaðan í febrúar 1966. Þá tók við kandídats- og síðar aðstoðarlæknisvinna á ýmsum deildum sjúkrahúsanna í Reykjavík, námsdvöl í Aberdeen og aðstoðarlæknisstaða á Sauðárkróki.
Bjarni stundaði framhaldsnám í almennum lyflækningum og meltingarsjúkdómum í Dundee í Skotlandi frá október 1970. Hann lauk sérfræðiprófi í lyflækningum (Member of the Royal College of Physicians, M.R.C. Phys.) í Glasgow í janúar 1973 og
...