— Morgunblaðið/Eggert

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hélt vinnufund í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum í gærmorgun. Ekki voru veitt viðtöl á Þingvöllum, hvorki fyrir né eftir fund. Var ljósmyndurum og tökumönnum haldið fjarri af laganna vörðum, sem fylgdu ráðherrunum inn í bústað.

Hér inn um glugga sést í Kristrúnu á fundinum og Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Í símaviðtali sem Kristrún veitti mbl.is í gær sagði hún fundinn hafa verið ófromlegan. Þar hefðu ráðherrar stillt strengi sína saman, verkefnum verið forgangsraðað og rýnt í hvaða málum væri hægt að koma hratt í gegn.

Fjöldi tillagna um sparnað heldur áfram að streyma inn á samráðsgáttina. Þangað voru komnar vel á annað þúsund umsagnir í gærkvöldi. Spurð út í samráðið sagði Kristrún sum ráð munu nýtast vel, önnur

...