Drengurinn heitir Tinotenda Pudu.
Drengurinn heitir Tinotenda Pudu.

Ungur drengur frá Afríkuríkinu Simbabve fannst á lífi eftir fimm daga veru í safarígarði sem þekktur er fyrir grimm ljón og ágenga fíla.

Drengurinn er sagður hafa gengið nærri 50 kílómetra frá heimili sínu og ráfað inn í garðinn. Þar inni eiga um 40 ljón heima og þykir ótrúlegt að þau hafi ekki haft nein afskipti af barninu. Afrískir fréttamiðlar segja drenginn hafa nýtt sér þekkingu sína á landinu þessa fimm daga úti í náttúrunni. Hann hafi haft vit á því að borða ávexti sem hann fann og gróf eftir grunnvatni með trjágreinum. Þannig tókst honum að draga fram lífið einn síns liðs.

Á fimmta degi sáu verðir garðsins fótspor eftir piltinn og voru þau rakin aftur til hans. Ekki er talið að drengnum hafi orðið meint af ævintýri sínu.