Árni Grétar Jóhannesson
Árni Grétar Jóhannesson

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar Jóhannesson, sem þekktur var undir nafninu Futuregrapher, er látinn, aðeins 41 árs að aldri.

Var hann ökumaður bílsins sem hafnaði í sjónum í Reykjavíkurhöfn á gamlársdag. Árni var afkastamikill raftónlistarmaður og einn stofnenda Möller records. Hann kom fram á tónlistarhátíðum hérlendis sem og erlendis, til að mynda í Norður-Ameríku og Evrópu.

Ólafur Sveinn Jóhannesson, bróðir Árna, greindi frá andlátinu á Facebook-síðu sinni.

„Ástkær bróðir okkar – Árni Grétar Jóhannesson – hefur kvatt þennan heim. Eftir hann liggur aragrúi tónverka, ljósmynda og texta sem lýsa fallegri sál,“ segir Ólafur í færslu sinni á Facebook. Fjölmargir hafa minnst Árna á samfélagsmiðlum.