Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
„Ég kom til Íslands 20. desember og fór beint í sveitina,“ segir Yeo Zong En, sem er 21 árs stúdent í viðskiptafræðum frá Singapúr. Hann hefur undanfarið verið að birta skemmtilegar myndir af sér í íslensku fjósi á TikTok undir nafninu Pompomyeo. En hvað er ungur viðskiptastúdent að gera á Íslandi í þrjár vikur yfir jól og áramót?
„Mig hafði alltaf langað að fara til Íslands, en það er bæði langt að fara og dýrt, þar sem ég er stúdent og hef ekki mikil fjárráð. Ég rakst á vefsíðuna Wwoof.com þegar ég var að skoða TikTok einn daginn, þar sem hægt er að sækja um stutta vist á bóndabæjum víðs vegar um heiminn og fá ókeypis fæði og húsnæði gegn því að vinna á bænum. Svo ég ákvað að sækja um og núna er ég kominn hingað á kúabúið á Minni-Ökrum í Skagafirði, en bærinn er rétt hjá Varmahlíð,“ segir Zong En. Hann mun því koma
...