Gífurlega mikil aðsókn hefur verið í Kringluna en þar byrjuðu útsölur 2. janúar og standa út mánuðinn. Í samtali við Morgunblaðið segir Baldvina Snælaugsdóttir markaðsstjóri Kringlunnar að mjög mikil aðsókn hafi verið í verslunarmiðstöðina í…
Kringlan Útsölur eru hafnar í verslunarmiðstöðinni og verða út mánuðinn.
Kringlan Útsölur eru hafnar í verslunarmiðstöðinni og verða út mánuðinn. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Gífurlega mikil aðsókn hefur verið í Kringluna en þar byrjuðu útsölur 2. janúar og standa út mánuðinn.

Í samtali við Morgunblaðið segir Baldvina Snælaugsdóttir markaðsstjóri Kringlunnar að mjög mikil aðsókn hafi verið í verslunarmiðstöðina í fyrradag en hún sé ekki komin með tölur yfir fjölda gesta í gær. Hún upplýsir þó að aðsóknin fyrstu dagana í janúar sé vel yfir meðallagi.

„Það virðist vera að fólk sé að kynna sér útsölurnar og gera góð kaup. Veturinn er náttúrulega skollinn á af þunga og margir að skoða kuldafötin og -skóna,“ segir Baldvina.

Er janúar sá mánuður á árinu þar sem mest er að gera?

„Allavega framan af janúar er rosalega mikið að gera.“

...